Svefndagbókin
Svefndagbók til að halda utan um svefninn þinn. Skráðu niður svefngæði, lengd svefns, drauma og hvað annað sem gæti verið að hafa áhrif á svefninn þinn. Skoðaðu svo aftur í tímann hvað hefur breyst eða hafðu tiltækar upplýsingar þegar á þarf að halda s.s. í svefnráðgjöf eða læknisviðtölum.
Skráning kvölds og morgna og yfirlit eftir hverja viku. Ódagsettar blaðsíður svo hægt er að nota bókina til styttri eða lengri tíma. Alls pláss fyrir 6 vikur samfellt eða 42 nætur.
Svefndagbókin kemur í tvennskonar útliti, fjólublá og svört, en innihaldið er alveg það sama.
Bónus - Draumadagbók aftast fyrir sérstaklega spennandi, skemmtilega eða áhugaverða drauma sem ekki komast fyrir í svefndagbókinni.